22.8.2008 | 13:56
Grátandi frú í garðinum við kirkjuna
YES-YES-YES!!!!
Þetta er komið, úrslitaleikurinn eftir 2 daga þar sem við, Íslendingar, eigum möguleika á gullinu. Erum allavega pottþétt á palli Ég er óheppin að hafa eyru því annars mundi ég brosa allan hringinn. Dóttir mín situr á gólfinu og segir, mamma afhverju ertu að gráta? ertu bara glöð? Því hér sit ég og græt og hlæ... Bara geggjun og tilfinningin sem ég get ekki líst brýst um í mér og ég er við það að springa
ÁFRAM ÍSLAND
Þar til næst...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.